Vááááááááááááááááá............................ Er
það eina sem ég get sagt
Þvílík stemming í gær
Eins og örugglega allir vita, þá urðu
Ítalir heimsmeistarar í gærkvöldi eftir að hafa unnið Frakkland

Við Manu komum heim frá Casalvelino í gærkvöldi og akkúrat þegar
við löbbuðum inn byrjaði leikurinn..... Ég rétt gat skellt mér í
ítalska búninginn.....
Horfðum sem sagt á leikinn öll familían hér, með fána út á svölum
og lúður við hendina...... Á neðstu hæðinni hérna í blokkinni
var búið að setja sjónvarpið út á bílastæðið og fólk búið að koma
sér vel fyrir..... Skotið var upp flugeldum og mikil
stemming.... Samt ekkert miðað við eftir leikinn!!!!
Þegar í ljós kom að Ítalía hafði unnið, þá hringdi frændi hans
Manu í okkur og bað okkur að koma niður í bæ að fagna, sem var
reyndar alltaf planið.... Fórum sem sagt öll fjölskyldan og
fjölskylda frændans.
Thvílíkt kaos........... Var umferðarstappa, allir á leiðinni
niður í bæ.... Veit ekki alveg hvernig ég á að lýsa
stemmingunni..... Allir bílar voru með a.m.k. 2 fána út um
gluggann, allir lágu á flautunni, fólk var syngjandi og dansandi á
götunum.... Skotið var upp flugeldum...........
Allir bílar voru vel fullir af fólki... sumir bílar með opið
skottið og fólk sat sem sagt þar.... Stórir vörubílar með pallinn
fullan af fólki.... Hafa örugglega verið um 50 manns aftan í einum
sem ég sá...... Svo sat fólk upp á þaki á sumum bílunum, eða sat
eða stóð út um gluggann......
Við lögðum bílnum langt frá miðbænum og löbbuðum í bæinn.....
Eða bárumst eiginlega áfram með fólksfjöldanum.... Ef fólk var ekki
með fána, þá var það í ítalska búningnum eða jafnvel klætt í föt í
fánalitunum.... Sumir voru meira að segja búnir að mála bílinn sinn
í fánalitunum.... Eða vefja bílinn inn í fána..... Nú eða sjálfan
sig....
Ég hef allavega ekki upplifað aðra eins stemmingu......ÓTRÚLEGA
GAMAN
Frænka hans Manu sagðist vera búin að bíða eftir að
upplifa þetta í 24 ár, en svo hafi ég bara verið búin að vera hér í
ár og upplifað þetta
hahaha
Tókum slatta af myndum, er ekki ennþá búin að skoða þær vel svo
ég veit ekki alveg hvernig þær komu út.... Ef þið viljið sjá þær,
þá getið þið bara komið og kíkt á þær þegar ég kem heim
FORZA ITALIA................

Ciao Tinna